Mögnuð Norah

Tónleikarnir í gær voru í einu orði sagt stórkostlegirSmile.  Norah Jones sýndi okkur þarna hve frábær listamaður hún er.  Ekki nóg með að hún hafi ótrúlega rödd heldur spilaði hún einnig á a.m.k. fimm mismunandi hljóðfæri.  The Handsome Band sem spilaði með henni kom skemmtilega á óvart, þarna voru greinilega þaulvanir tónlistarmenn á ferð.  Þetta var svo afslappað hjá þeim og ótrúlega "pro" að mér fannst á tímabili að ég gæti alveg eins verið að hlusta á þetta af diski því ekki var að heyra eina feilnótu.  Norah kom ótrúlega vel fyrir, heillandi og sjarmerandi persóna.  Hún sagðist hafa smakkað pyslu á Bæjarins bestu og ætlaði að fá sér aðra í morgunmat eftir að hún væri búin að sofa útWink.

Tónleikarnir fá hæstu einkunn hjá mér, snilldin ein í alla staðiSmile.  Eina sem ég get mögulega sett út á var að ég saknaði þess að heyra ekki lagið "Don't know why!" sem er lagið sem kom henni upprunalega á kortið. 

Það er synd hvað fáir gátu séð þessa frábæru söngkonu í þetta sinn en ef hún kemur aftur til Íslands þá verð ég fyrst til að tryggja mér miðaWink.


mbl.is Norah Jones í Laugardalshöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband